0
World
Bíll sprakk í loft upp þannig að ómaði um alla Malmö
April 19, 2026
Scroll
Posted 2 hours ago by
Bíll sprakk í loft upp í Hindby-hverfinu í sænsku borginni Malmö laust eftir klukkan þrjú í nótt að staðartíma. Sænskur lögreglubíll. Mynd úr safni.SVT / BlåljusbilderSprengingin var svo hávær að hún heyrðist um nær alla borgina að sögn fréttamiðilsins Sydsvenskan. Enginn eldur fylgdi sprengingunni. Einn hefur verið handtekinn, sem að sögn sjónarvotta var með uppsteit við lögreglu.
Enginn slasaðist við sprenginguna en talsverðar skemmdir urðu á nærliggjandi húsum, gluggarúður brotnuðu og gat kom á húsvegg. Bílar skemmdust einnig þegar brak féll á þá. Lögregla hefur lokað svæðið af meðan sprengjusérfræðingar athafna sig.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.
Iceland
Bias: lean left
People's Voices (0)
Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.