Besta deild karla hefst í kvöld
April 10, 2026
RÚV
Víkingur er núverandi Íslandsmeistari og leysti Breiðablik þar af hólmi. Frá 2020 hafa þessi tvö lið skipst á að verða Íslandsmeistari; Víkingur þrisvar og Breiðablik tvisvar.Víkingur sigraði sömuleiðis á dögunum í Meistarakeppni KSÍ.Leikir þessara liða hafa verið býsna harðvítugir á síðustu árum og verður spennandi að sjá hvort sami hiti verði þegar liðin mætast nú í aprílbyrjun.1.
umferð heldur svo áfram á sunnudag þegar fimm leikir eru á dagskránni:13:00 ÍBV - FH17:00 KA - Stjarnan17:00 KR - Keflavík17:00 Valur - Þór Akureyri19:30 Fram - ÍAKeflavík og Þór Akureyri eru nýliðar í deildinni í ár og var spáð falli í Lengjudeildina í árlegri spá forráðamanna liðanna. Víkingi var spáð titlinum.Keflavík gerði KR skráveifu fyrir 30 árumÍ ár er ekki í fyrsta skipti sem KR og Keflavík mætast í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Fyrir sléttum 30 árum mættust liðin í Keflavík. KR var þá spáð titlinum en þeir misstigu sig í Keflavík.Íslandsmótinu lauk þetta ár með sigri ÍA eftir að liðið lagði KR í hreinum úrslitaleik á Akranesi 4-1.Hér að neðan má sjá umfjöllun RÚV um leikinn í Keflavík fyrir 30 árum.Keppni hefst í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta. Það er enginn smáleikur sem hleypir Íslandsmótinu af stað því það eru Íslandsmeistarar síðustu fimm ára sem eigast við.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.