0
Beita úthugsuðum aðferðum til að ginna börn
April 22, 2026
Posted 2 hours ago by
Foreldrar geta verið feimnir við að fylgjast með samfélagsmiðlanotkun barna sinna, að mati Símonar Geirs Geirssonar samfélagslögregluþjóns sem segir þörf á auknum forvörnum. Þeir sem ginna börn beita úthugsuðum aðferðum.Við þekkjum hætturnar í umferðinni, við þekkjum hætturnar í samfélaginu en við þurfum líka að þekkja hætturnar sem geta verið á samfélagsmiðlum,“ segir Símon.Mæður tveggja fjórtán ára stúlkna sem karlmenn ginntu upp í bíl sinn um helgina, eftir samskipti á Instagram, sögðust í viðtali við fréttastofu vera vanmáttugar gagnvart þeim hættum sem leynast á samfélagsmiðlum.Það getur verið mismunandi eftir hverfum hvaða samfélagsmiðlar eru notaðir til að ginna börn.
Lögreglumaður telur foreldra stundum feimna við að fylgjast með samfélagsmiðlanotkun barna sinna.Símon segir þá sem nálgist börn með þessum hætti beita úthugsuðum aðferðum - en allt byrji þetta á því að mynda samband við barnið, stundum yfir langan tíma.Börnin geta orðið háð samskiptunumSumir villa á sér heimildir, segjast vera yngri en þeir eru,“ segir Símon. Á meðan aðrir koma hreint fram en eru samt að mynda einhverskonar samband og mynda vináttu, kannski ástarsamband, þar sem farið er eftir ákveðnum reglum eða strúktúr sem leiðir til að krakkinn verður háður þessum samskiptum eða þessu sambandi.“Heldurðu að foreldrar séu feimnir við að fylgjast með börnunum sínum á samfélagsmiðlum? Ég gæti alveg trúað því að það séu margir feimnir. En ég held líka að marga vanti aðstoð. Og vanti ráð.“Ýmis aðstoð í boðiÞað er nefnilega aðstoð í boði. Hægt er að tilkynna um netglæpi á Ísland.isog lögreglan starfar mikið með Netvís - miðstöð um netöryggi og miðlalæsiog þar eru upplýsingar um helstu samfélagmiðla, hvernig á að setja skjátíma og tilkynna óviðeigandi samskipti:Það eru ekki margir sem vita hvernig á að tilkynna óæskilega hegðun sem á sér stað í gegnum t.d. Snapchat eða önnur forrit. Það er mikilvægt, okkur hjá lögreglunni finnst mikilvægt að valdefla foreldra og valdefla börnin,“ segir Símon.Og það er mismunandi hvaða samfélagsmiðlar eru helst notaðir í þessum tilgangi. Í einu hverfi er kannski mikið notað Snapchat, í öðru hverfi er kannski verið að nota mikið WhatsApp.“Þarf að auka forvarnir? Alveg 100.“ Höfum við sofið á verðinum? Við erum að upplifa mikla tækni sem er í ofboðslega mikilli þróun og við eigum kannski erfitt með að ná utan um hvað er í gangi,“ segir Símon.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.