0
Beint: Dregið í riðla EM kvenna í handbolta
April 16, 2026
Posted 2 hours ago by
Dregið verður í riðla Evrópumóts kvenna í handbolta í Katowice í Póllandi kl. 16 í dag. Ísland er með á mótinu og verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki. Mótið fer fram í Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi 3.-20. desember.24 þjóðir keppa á mótinu og er styrkleikaflokkarnir fjórir. Ísland er í styrkleikaflokki með Króatíu, Serbíu, Norður-Makedóníu, Úkraínu og Grikklandi og getur því ekki lent í riðli með neinni þeirra.Sex riðlar eru á mótinu og hefur gestgjafaþjóðunum fimm þegar verið raðað í einn riðil hverri.
Ungverjar eru svo öruggir með að vera í A-riðli sem er leikinn í Oradea í Rúmeníu, sem er við ungversku landamærin.Riðlakeppni EM hefst 3. desember og lýkur sex dögum síðar. Þá tekur milliriðlakeppnin við til 16. desember og svo er leikið í undanúrslitum og úrslitum 18. og 20. desember.Þetta er í fjórða sinn sem Ísland er með á EM og annað mótið í röð. Síðast varð Ísland í 16. sæti eftir sigur gegn Úkraínu en tap gegn Hollandi og Þýskalandi.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.