Beinir nýr lögmaður Færeyja
April 8, 2026
RÚV
Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, verður nýr lögmaður Færeyja. Færeyska ríkissjónvarpið, Kringvarpið, segir að Fólkaflokkurinn sé einnig búinn að mynda stjórn með Sambandsflokknum og Jafnaðarflokknum. Ríkisstjórnarsamstarfið verður tilkynnt formlega á blaðamannafundi á morgun.Kosið var til Lögþingsins 26. mars og Fólkaflokkurinn var sigurvegari þeirra.
Flokkurinn bætti við sig þremur þingsætum frá síðustu kosningum og fékk alls níu þingsæti. 33 þingsæti eru á Lögþingi Færeyja og 17 þingsæti þarf til að mynda ríkisstjórn.Beinir fæddist í Klaksvik 12. febrúar 1997 og er því 29 ára. Hann var fyrst kjörinn á þing fyrir flokkinn 2019 og varð formaður eftir kosningar 2022. Hann á ekki langt að sækja stjórnmálaáhugann því Vilhelm Johannesen afi hans var virkur í stjórnmálum og fráfarandi lögmaður, Aksel V. Johannesen, er föðurbróðir hans. Aksel og Beinir verða saman í ríkisstjórn.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.