Advertisement
Bandaríkjaher leitar að hermanni í kappi við tímann
World

Bandaríkjaher leitar að hermanni í kappi við tímann

April 4, 2026
RÚV
Scroll

Bandarískur hermaður sem var um borð í F-15 orrustuþotu sem var skotin niður yfir Íran í gær er enn ófundinn. Bandaríkjaher og Íranir eru í kapphlaupi um að finna hann, írönsk stjórnvöld heita sem nemur ríflega átta milljónum króna í umbun fyrir þann sem finnur hermanninn.Bandarísk stjórnvöld hafa ekki sagt mikið opinberlega um þetta mál. Donald Trump Bandaríkjaforseti var spurður í símaviðtali í gær hvernig hann myndi bregðast við ef Íranir næðu hermanninum.

Bandaríkjaher leitar að hermanni í kappi við tímann

Hann sagðist ekki vilja ræða það, því vonandi myndi það ekki gerast.Trump var einnig spurður hvort þetta atvik hafi áhrif á mögulegar viðræður við Íran og sagðist hann ekki eiga von á því. Ef Íranir ná þessum bandaríska hermanni yrði það mikill sigur fyrir írönsk stjórnvöld og vafalaust notað í einhvers konar áróðursherferð.Í dag eru fimm vikur frá því átökin hófust og líklega var það tímaspursmál að Bandaríkin eða Ísrael myndu lenda í slíku atviki í Íran. Herlið þessarar tveggja ríkja hafa sveimað stöðugt yfir Íran og gert þar loftárásir.Íransher hefur gert nokkuð umfangsmiklar árásir á Ísrael í nótt og í morgun. Enn komast íranskar eldflaugar í gegnum öflugt loftvarnarkerfi Ísraela. Það eru töluverðar skemmdir á byggingum og að minnsta kosti einn er særður.Ísraelsher hefur einnig gert árásir á Íran, meðal annars á háskóla í Teheran. Þá hefur Ísraelsher gert harðar árásir á Líbanon.Þrír indónesískir friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna særðust í sprengingu í Líbanon í gær, tveir þeirra mjög alvarlega að sögn embættismanna. Þrír landar þeirra týndu lífi í svipaðri árás þremur dögum fyrr.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More