Bandaríkjaforseti gagnrýnir Leo XIV páfa harðlega
0
World

Bandaríkjaforseti gagnrýnir Leo XIV páfa harðlega

April 13, 2026
RÚV
Scroll

Donald Trump gagnrýndi Leo XIV páfa í gær og sagði að hann væri ekki mikill aðdáandi páfans eftir að páfinn bað fyrir friði á laugardaginn. Trump lét þessi ummæli falla í viðtali við fjölmiðla á Joint Base Andrews-herstöðinni í Maryland. Hann sagði að páfinn væri frjálslyndur og hefði ekki trú á því að stöðva glæpi.Leo XIV er fyrsti bandaríski páfi kaþólsku kirkjunnar.

Bandaríkjaforseti gagnrýnir Leo XIV páfa harðlega

Hann biðlaði til leiðtoga á laugardaginn um að binda enda á ofbeldi og sagði að nú væri nóg komið af sjálfsdýrkun og dýrkun á peningum. Nóg væri komið af sýndarmennsku og stríði.Þessi beiðni páfans féll ekki í kramið hjá Bandaríkjaforseta sem gagnrýndi páfann einnig harðlega í langri færslu á samskiptamiðlinum Truth Social í nótt. Trump sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranar ættu kjarnorkuvopn eða væri mótfallinn aðgerðum Bandaríkjanna í Venesúela gegn glæpamönnum. Trump sagði að Leo páfi hefði eingöngu verið valinn af því að hann sé bandarískur og kaþólska kirkjan hefði talið hann bestan til að eiga við Donald J. Trump.Bandaríkjaforseti klykkti svo út með Leo ætti að gera betur sem páfi, beita almennri skynsemi, hætta að ganga erinda öfga vinstrisins og leggja áherslu á það að vera frábær páfi, ekki stjórnmálamaður. Þetta bitnar á honum og það sem meira er, þetta bitnar á kaþólsku kirkjunni,“ sagði Trump í færslu sinni.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More