Bandaríkjaforseti framlengir vopnahléið við Íran
0
World

Bandaríkjaforseti framlengir vopnahléið við Íran

April 21, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að framlengja vopnahlé Bandaríkjanna og Ísraels við Íran til þess að aukinn tími gefist til samningaviðræðna. Herkví bandaríska sjóhersins við Hormússund fellur hins vegar ekki úr gildi.Í færslu sem Trump birti á samfélagsmiðlinum Truth Social í kvöld sagðist hann hyggjast framlengja vopnahléð þar til Íranar settu fram tillögu um hvernig hægt væri að binda enda á átökin.Í ljósi þess að stjórn Írans er alvarlega sundruð, sem er ekki óvænt, og að beiðni Asim Munir hershöfðingja og Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, höfum við verið beðin um að fresta árás okkar á Íran þar til leiðtogar þeirra og fulltrúar hafa lagt fram samstillta tillögu,“ segir í færslu forsetans.Hann segist hafa skipað Bandaríkjaher að halda uppteknum hætti í Hormússundi og að halda áfram á sama viðbúnaðarstigi.

Bandaríkjaforseti framlengir vopnahléið við Íran

Þar af leiðandi hyggist hann framlengja vopnahléð þar til viðræðum ríkjanna lýkur, með einum eða öðrum hætti.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More