Bandaríkin og Íran lýsa bæði yfir sigri eftir að vopnahlé var samþykkt
World

Bandaríkin og Íran lýsa bæði yfir sigri eftir að vopnahlé var samþykkt

April 8, 2026
RÚV
Scroll

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin hafi unnið algeran og fullkominn sigur, eftir að tilkynnt var um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans í gærkvöld. Þetta sagði hann í stuttu viðtali við fréttaveituna AFP eftir að Bandaríkin tilkynntu að samkomulag hefði náðst um tveggja vikna vopnahlé og opnun Hormússunds seint í gærkvöld. Íranar sendu Bandaríkjastjórn friðartillögu í 10 liðum um hvernig megi binda enda á stríðið með milligöngu stjórnvalda í Pakistan.Íranar hafa einnig lýst yfir sigri og stjórnvöld hafa samþykkt að hefja viðræður á föstudaginn.

Bandaríkin og Íran lýsa bæði yfir sigri eftir að vopnahlé var samþykkt

Óvinurinn hefur beðið ótvíræðan, sögulegan og algjöran ósigur í þessu huglausa, ólöglega og glæpsamlega stríði gegn írönsku þjóðinni,“ sagði í yfirlýsingu frá þjóðaröryggisráði Írans.Íranar segja að íranski herinn tryggi örugga siglingu skipa um Hormússund í tvær vikur. Bandaríkjaforseti hefur sagt Bandaríkin tilbúin til að aðstoða við aukningu á siglingum um Hormússund og verði á vettvangi til að tryggja að allt gangi vel fyrir sig.Ísrael viðurkennir ekki vopnahlé í LíbanonBenjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels segir að vopnahléið gildi ekki fyrir Líbanon en styður að öðru leyti hlé á árásum milli Írans og Bandaríkjanna. Þessi yfirlýsing Netanyahu er þvert á yfirlýsingar stjórnvalda í Pakistan sem hafa miðlað málum milli Bandaríkjanna og Írans. Forsætisráðherrann Shehbaz Sharif segir vopnahléið gilda alls staðar og líka í Líbanon.Trump sagði í viðtali við fréttaveituna AFP að hann teldi að Kína hefði hjálpað til við að koma Íran að samningaborðinu og samþykkja tveggja vikna vopnahlé. Shehbaz Sharif hefur boðið samninganefndum Írans og Bandaríkjanna til viðræðna í Islamabad á föstudaginn.Þrátt fyrir tilkynningu um vopnahlé hefur verið greint frá árásum í nokkrum löndum. Fimm sprengingar heyrðust í Baghdad í nótt, þar sem bandaríska sendiráðið er staðsett. Þá voru einnig sprengingar í Doha, höfuðborg Katar, og loftvarnarkerfi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum skutu niður flugskeyti og dróna í árásum frá Íran í nótt.Guterres hvetur þjóðirnar til að vinna að varanlegri lausnAðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, fagnar vopnahléi milli Bandaríkjanna og Írans samkvæmt tilkynningu frá talsmanni hans, Stephane Dujarric. Guterres hvetur þjóðirnar í átökunum í Mið-Austurlöndum til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt alþjóðalögum og fara eftir skilmálum vopnahlésins og vinna að varanlegri lausn og friði í þessum heimshluta.Alls hafa 1530 manns verið drepnir í átökum Ísraelshers og Hezbolla-hreyfingarinnar í Líbanon samkvæmt fréttaveitu AFP. Þar af eru 102 konur og 130 börn. Þá hafa 4.812 manns særst í átökunum.Hér fyrir neðan er samantekt á fréttavakt um vopnahléið og fleiri fréttir því tengdu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More