0
„Baldur þarf að fá að geta siglt óáreittur um Breiðafjörð“
April 17, 2026
Posted 1 hour ago by
Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir nauðsynlegt að tryggja aðra varaferju fyrir Herjólf heldur en Breiðafjarðarferjuna Baldur. Vegna bilunar í Herjólfi verður Baldri siglt milli lands og Eyja dagana 20. og 21. apríl.Herjólfur III liggur við Sundahöfn í Reykjavík og gæti vel gegnt þessu hlutverki,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Að missa ferjuna svona fyrirvaralaust, það náttúrulega kemur sér sérlega illa, sérstaklega á þessum tíma árs.“Gerður Björk segir þessa stöðu ekki ásættanlega. Fyrirtæki reiði sig mikið á flutninga með Baldri vegna þungatakmarkana á illa förnum vegum á Vesturlandi og því verði áhrifin töluverð.Þá þurfa flutningabílarnir að keyra og þeir þurfa að létta sig til að geta keyrt vegina. Þetta eykur slit á vegum sem eru í mjög viðkvæmu ástandi eins og er. Vegirnir eru bara mjög illa farnir.“Of löng bið eftir Herjólfi IIISamkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er Herjólfur III ekki með haffærisskírteini og því hefðu liðið tíu til fjórtán dagar áður en hann gæti leyst Herjólf af.Þetta er ítrekað að gerast,“ segir Gerður Björk. Baldur þarf bara að fá að geta siglt óáreittur um Breiðafjörð.“Gert er ráð fyrir að Baldri verði siglt frá Stykkishólmi á sunnudag til að sinna siglingum milli lands og Eyja. Áætlað er að hann verði kominn aftur til Stykkishólms á miðvikudag og sigli samkvæmt áætlun milli á fimmtudaginn. En svo þekkjum við það að það getur nú riðlast og breyst,“ segir Gerður Björk.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.