„Bæjarstjórn hefur tekið þá ákvörðun að það verði skólahald í bænum í haust“
0
World

„Bæjarstjórn hefur tekið þá ákvörðun að það verði skólahald í bænum í haust“

April 22, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Grindavík í dag. Á honum voru miklar umræður um þá óvissu sem ríkir um framtíð bæjarfélagsins og þau vonbrigði sem íbúar hafa orðið fyrir vegna viðbragða stjórnvalda og eftirlitsaðila.Bæjarstjórn Grindavíkur boðaði til fundarins en hún hefur tekið ákvörðun um að skólahald hefjist í Grindavík í haust. Bæjarstjórn hefur tekið þá ákvörðun að það verði skólahald í bænum í haust,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur.Í ályktun sem íbúar sendu frá sér eftir fundinn kemur fram að ein krafa þeirra til stjórnvalda sé að skólastarf verði tryggt í haust.

„Bæjarstjórn hefur tekið þá ákvörðun að það verði skólahald í bænum í haust“

Það að neita barnafjölskyldum sem vilji snúa aftur heim um grunnþjónustu jafngildi því að stöðva uppbyggingu bæjarins.Stærsta áfall barnanna í Grindavík er að hafa misst tengslanet og vini. Að dæma þau til óvissu í heilt ár í viðbót er óásættanlegt,“ segir í ályktuninni.Forsætisráðherra og talsmenn Þórkötlu fjarverandiTil stóð að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra myndi kynna afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur á fundinum en hún afboðaði komu sína sökum anna.Fulltrúar frá fasteignafélaginu Þórkötlu, sem séð hefur um að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæða í Grindavík, voru einnig fjarverandi. Til stóð að félagið myndi kynna endurkaupaáætlun félagsins en íbúar telja nauðsynlegt að skýra þá kosti sem standa til boða svo hægt sé að ákvarða framhaldið.Íbúar beindu einnig spjótum sínum að Þórkötlu í ályktun sinni en þar er imprað á því að jafnræði verði tryggt í húsnæðismálum.Fundurinn treystir því að Fasteignafélagið Þórkatla muni ekki gera upp á milli íbúa eftir fjölskyldugerð. Öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis í Grindavík verður að gera það kleift að flytja aftur í sín hús, kjósi þeir það, og það ferli má ekki draga á langinn.“Fannar þakkar fyrir sigFannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, lætur af störfum í vor. Hann kveðst einstaklega þakklátur Grindvíkingum og segist munu sakna Grindavíkur mikið.Þetta mun lifa í hjörtum okkar það sem eftir lifir.“Bæjarstjórn Grindavíkur hefur tekið þá ákvörðun að skólahald verði í bænum í haust. Þetta kom fram á íbúafundi sem haldinn var í bænum í dag. Í ályktun íbúa af fundinum er gerð afdráttarlaus krafa um að stjórnvöld tryggi skólahald í bænum í haust.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More