0
Austurleiðarúta afhent Samgöngusafninu í Skógum
April 12, 2026
RÚV
X – 500 er númer á rútu af árgerð 1961, Austurleiðarrútu, sem Rótarýklúbbur Rangæinga hefur gefið Samgöngusafninu á Skógum undir Eyjafjöllum til varðveislu. Rútan er öll hin glæsilegasta en hún er nýsprautuð og ökufær.Rútan var sprautuð hjá Bílakarlinum á Selfossi, fjölskylduverkstæði þar sem Halldóra Sigríður Benediktsdóttir var allt í öllu þegar kom að sprautuninni.Við þurftum að skipta aðeins hérna neðri hlutann og þurftum að pússa hana alla upp og hreinsa öll ryð og svo bara grunna og mála.
Þetta var mjög skemmtilegt verkefni, það er gaman að vera með í þessu,“ segir Halldóra.Það kom svo í hlut Finnboga Óskars að keyra rútuna út af verkstæðinu og keyra hana í Skóga og gekk sú ferð mjög vel.Já, það hafa örugglega mörg sambönd orðið til þarna í aftursætunum, ég hugsa það,“ segir Finnbogi hlæjandi.Í rútunni er skilti þar sem kemur fram að bannað sé að tala við rútubílstjórann á meðan akstri stendur, allir eigi að halda sér fast á meðan rútan er á ferð og að reykingar séu bannaðar.Það var svo síðdegis í gær sem rútan var formlega afhent safninu en Andri Guðmundsson, forstöðumaður safnsins, fékk lykilinn að rútunni úr hendi Ísólfs Gylfa, forseta Rótarýklúbbs Rangæinga, og svo var merki Rótarý límt utan á rútuna.Sigurlína Sveinbjarnadóttir, félagi í klúbbnum, hefur unnið hvað mest að rútuverkefninu en hún tilheyrir Austurleiðarfjölskyldunni.Þetta er náttúrulega stórkostleg rúta sem skiptir samfélagið okkar miklu máli og gaman að varðveita söguna,” segir Ísólfur Gylfi.Við vorum búin að átta okkur á að það vantaði kafla í samgöngusöguna hérna á safninu,” segir Sigurlína.Nokkrum söguspjöldum um Austurleið hefur verið komið upp á safninu þar sem má sjá skemmtilegar myndir af gömlum rútum fyrirtækisins og fleira áhugavert.Við hvetjum fólk til þess að skoða rútuna og reyndar Samgöngusafnið og Skógarsafn í heild, sem er mjög merkileg stofnun og skiptir samfélagið okkar og reyndar landið í heild miklu máli,” segir Ísólfur Gylfi.Rótarýklúbbur Rangæinga hefur gefið Samgöngusafninu á Skógum undir Eyjafjöllum rútu af árgerð 1961 til varðveislu. Samgöngusafnið fékk rútuna afhenta í gær.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.