Auglýst eftir sýslumanni Íslands

Auglýst eftir sýslumanni Íslands

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumanns sem stofnað verður 1. janúar 2027. Þá verða níu núverandi embætti sameinuð og landið verður eitt sýslumannsembætti.Alþingi samþykkti í febrúar að sameina sýslumannsembættin en þingmenn Framsóknarflokksins og Miðflokksins greiddu atkvæði gegn því. Þeir óttast að með breytingunni flytjist störf af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.Í auglýsingu ráðuneytisins segir að leitað sé að framsýnum leiðtoga með skýra sýn og getu til að leiða sameininguna, tryggja samfellu í lögbundinni starfsemi og móta sameinað embætti.Markmiðið verði meðal annars að fjölga störfum á landsbyggðinni og stuðla að jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu. Gert er ráð fyrir að 250 manns komi til með að starfa hjá sýslumanni víða um land en ekki að hann hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir umsóknir og skila rökstuddu áliti til ráðherra. Sýslumaður verður skipaður til fimm ára í senn.

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left