0
Átta dagdvalarrými verða opnuð í uppsveitum Árnessýslu
April 12, 2026
RÚV
Sveitarstjórnir í uppsveitum Árnessýslu hafa náð samkomulagi við ríkið um að að opna dagdvalarrými fyrir átta eldri borgara en engin slík þjónusta er þar í dag.Sveitarstjórnarmenn í Grímsnes- og Grafningshreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Hrunamannahreppi og Bláskógabyggð hafa barist til margra ára fyrir því að fá dagdvalarrými fyrir aldraða á svæðinu og nú hefur það loksins gerst og ef allt gengur upp þá verður slík aðstaða opnuð í Reykholti í Bláskógabyggð næsta haust og í Brautarholti á Skeiðum.Ásta Stefánsdóttir er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.Já, það er svo ánægjulegt að það er búið að samþykkja að sveitarfélögin í uppsveitum Árnessýslu fái heimild til að reka dagdvöl eða dagdvalarþjónustu fyrir eldri borgara.
Þetta er ánægjulegur áfangi því það er virkilega skortur á þjónustu við eldra fólk á þessu svæði,” segir Ásta.En fyrir þá sem ekki vita, dagdvalarými, hvað er það?Það þýðir að fólk á þessu svæði, sem á erfitt með að vera eitt heima, það getur komið til okkar og fengið þar umönnun og umhirðu og jafnvel einhverja létta leikfimi, afþreyingu og tómstundir. Þetta er til þess fallið að draga úr einmanaleika og auðvelda þeim, sem kannski ekki eru komnir á það stig að fara á hjúkrunarheimili en eru mikið einir heima og jafnvel erfitt fyrir aðstandendur að aðstoða þá svona yfir daginn,” segir Ásta.Og þessi þjónusta er ekki til staðar í dag eða hvað?Nei, ekki á þessu svæði en það er á Selfossi”.En hvenær á Ásta von á að nýja dagdvölin í uppsveitunum verði opnuð og hvar verður hún staðsett?Það hefur verið lagt upp með það að hún geti verið svolítið færanleg og að hún muni byrja í Reykholti og í Brautarholti. Næsta skref er að fara í samningaviðræður við Sjúkratryggingar þar sem gengið verður frá öllum praktískum atriðum og vonandi náum við bara að auglýsa eftir fólki og byrja í haust, það væri óskandi,” segir Ásta.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.