Advertisement
Átak vegna minnkandi bílbeltanotkunar ungs fólks
World

Átak vegna minnkandi bílbeltanotkunar ungs fólks

April 4, 2026
RÚV
Scroll

Minnkandi bílbeltanotkun í aldurshópnum 18 til 24 ára mælist í árlegri viðhorfskönnun Samgöngustofu. Stofnunin hefur ráðist í átak til að stuðla að viðhorfsbreytingu.Í lok árs '24 þá sjáum við tölurnar þannig að þær öskra á viðbrögð,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu.Við erum bara að sjá minnkandi beltanotkun hjá ungu fólki þannig að við erum að bregðast við þessari tölfræði að þetta eru svona má segja kannski á bilinu 10 til 15 prósent sem eiga það til að sleppa beltinu og það er eiginlega bara í okkar huga alltof mikið.“Fjórtánfalt líklegra sé að látast í bílslysi þegar bílbelti eru ekki notuð, segir Gunnar.Síðustu tuttugu ár hafa fleiri látist beltislausir heldur en í belti í innanbæjarslysum og þegar við sjáum að beltanotkunin er yfir 90 heilt yfir innanbæjar þá er það tiltölulega auðvelt reikningsdæmi og við fáum þennan fjórtánfalda mun.“Samgöngustofa hefur því ráðist í átak undir yfirskriftinni: Ekki gera þig að fífli.“ Gunnar segir að ákveðið hafi verið að reyna frekar að ná til unga fólksins með léttleika og húmor en fortölum og hræðsluáróðri.Við erum að sýna klesst andlit, sem sagt í rauninni hvað gerist ef þú klessist upp við framrúðuna beltislaus.

Átak vegna minnkandi bílbeltanotkunar ungs fólks

En þetta er auðvitað bara sekúndubroti áður en andlitið fer í gegnum rúðuna. Við viljum ekki fara að sýna einhver glerbrot og blóð en í staðinn sýnum við hvað fólk lítur asnalega út klesst upp við gler. Auðvitað lítur fólk asnalega út ef það er beltislaust í bíl yfir höfuð og afleiðingarnar eru náttúrulega grafalvarlegar.“Bílbeltanotkun ungs fólks hefur dregist saman. Fjórtánfalt líklegra er að látast í bílslysi sé bílbelti ekki notað.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More