Ásgeir og Tristan unnu brons á EM
April 2, 2026
RÚV
Ásgeir Karl Gústafsson og Tristan Máni Nínuson unnu brons í tvímenning á Evrópumóti ungmenna í keilu. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland vinnur til verðlauna á mótinu.Evrópumót U18 hefur farið fram í Berlín í Þýskalandi nú yfir páskana.Þeir voru í 4. sæti af 54 liðum að riðlakeppni lokinni þar sem þeir voru með meðaltalsskor upp á 225,4 pinna.Þeir töpuðu naumlega gegn Dönum í undanúrslitum en það lið var í efsta sæti eftir riðlakeppni.
Undanúrslitaeinvígið tapaðist í síðasta kasti í síðasta ramma.Danir unnu undanúrslitijn 449 gegn 438. Því var ljóst að Ísland fengi brons.Mattias Möller og Katrín Fjóla Bragadóttir eru þjálfarar. Svavar Steinn Guðjónsson og Þorgils Lárus Davíðsson kepptu einnig á mótinu fyrir Íslands hönd.Í þriðja skiptiðMikael Aron Vilhelmsson tók brons í Masters keppninni árið 2024 og Arnar Davíð Jónsson vann gull í Masters keppninni árið 2011.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.