Artemis á leið til jarðar
April 10, 2026
RÚV
Artemis-leiðangurinn sem síðustu daga hefur flogið í kringum tunglið er væntanlegur til jarðar eftir nokkra klukkutíma. Leiðangurinn, sem er á vegum NASA, geimferðastofnunar Bandaríkjanna, hófst 1. apríl. Stefnt er að því að Orian, geimfari leiðangursins, verði lent stuttu eftir miðnætti í Kyrrahafi, úti fyrir San Diego.Heimferðin er flókin, jafnvel flóknari en förin að tunglinu, og hafa geimfararnir fjórir staðið í ströngu við undirbúning hennar.Björgunarsveitir verða tilbúnar í sjónum og hjálpa áhöfninni um borð í herskip.
NASA hefur sett þau skilyrði að til að lenda þurfi ölduhæð að vera undir einum komma átta metrum og ekki megi vera rigning né hávaðarok og ekki eldingar innan þrjátíu sjómílna radíuss. Flest bendir til þess að aðstæður til lendingar verði góðar í kvöld.Við lendinguna mun Orion-geimfarið koma inn í lofthjúp jarðar í um 120 kílómetra hæð yfir Kyrrahafinu á ofsahraða, eða um 38600 km/klst. Á geimfarinu er hitaskjöldur sem mun hitna gríðarlega og ná um 2760 gráðum á Celsíus sem er nær helmingur hitans á sýnilegu yfirborði sólarinnar.Geimfararnir fjórir um borð treysta á að hitaskjöldurinn haldi þeim öruggum þar til þeir lenda í sjónum með hjálp fallhlífa.Við berum mikið traust til kerfisins, hitaskjaldarins, fallhlífanna og endurheimtarkerfanna sem við höfum sett saman,“ sagði Amit Kshatriya, aðstoðarforstjóri NASA, í gær.NASA gerði nokkrar breytingar á lendingaráætluninni eftir að hitaskjöldurinn í ómannaða Artemis I tilraunafluginu árið 2022 varð fyrir skemmdum.Hér má sjá beint streymi frá Orion og frá undirbúningi lendingarinnar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.