0
Ársskýrsla Amnesty International: Hrun heimskipanarinnar þegar hafið
April 21, 2026
Posted 2 hours ago by
Amnesty International segir heiminn standa á barmi nýs og hættulegs tímabils þar sem valdamikil ríki, fyrirtæki og hreyfingar sem eru andsnúin réttindum ráðist á alþjóðasamstarf, alþjóðalög og mannréttindi.Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu samtakanna. Þau vara við þessari þróun og segja nauðsynlegt að ríki, alþjóðastofnanir og borgaralegt samfélag hafni undanlátssemi í stjórnmálum til að komast hjá ófriði, líkt og gerðist í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar.Í skýrslunni er haft eftir Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, að vaxandi átök í Miðausturlöndum séu afleiðing þessarar þróunar í átt að lögleysu.Í kjölfar fyrstu ólögmætu árása Bandaríkjanna og Ísraels, sem brutu gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna og leiddu til handahófskenndra hefndaraðgerða Írans, hafa átökin á skömmum tíma þróast yfir í stríð gegn óbreyttum borgurum og borgaralegum eignum, sem eykur enn á þær hörmungar sem fólk á svæðinu býr nú þegar við.
Átökin teygja nú anga sína víða um heim, hafa áhrif á samfélög um heim allan og ógna afkomu milljóna. Svona fer þegar viðmið, stofnanir og lagarammi, sem voru vandlega uppbyggð til að vernda mannkynið, eru gerð að engu í þeim tilgangi að ná völdum,“ segir hún.Í skýrslunni er ekki aðeins varað við yfirvofandi hruni á heimsskipan, heldur er þetta hrun þegar sagt hafið. Alþjóðaglæpir breiðist út og alþjóðlegt réttarkerfi verði fyrir auknum árásum.Víða um heim séu framdar hættulegar árásir sem hraði tortímingu alþjóðalaga. Þar eru mörg dæmi nefnd og þar koma Bandaríkin, Ísrael og Rússland mest við sögu, þó að fleiri þjóðir séu með aðgerðum sínum að stuðla beint eða óbeint að auknum ófriði. Þetta hefur að mati Amnesty International stuðlað að hruni heimsskipanarinnar: Ísraelsmenn haldi áfram að fremja hópmorð (þjóðarmorð) á Palestínumönnum á Gaza. Á sama tíma hafi ólöglegar landtökubyggðir á Vesturbakkanum stækkað.Bandaríkin hafi tekið 150 manns af lífi án dóms og laga með því að sprengja báta á Karíbahafi og Kyrrahafi. Þar er vísað í aðgerðir undir því yfirskini að stöðva fíkniefnaflutning til og frá Venesúela.Bandaríkin og Ísrael hófu ólöglegar árásir á Íran sem hafa sett líf og heilsu milljóna manna í hættu.Rússar hafi hert loftárásir á borgaralegar eignir í Úkraínu.Bandaríkin, Ísrael og Rússland grafi enn frekar undan alþjóðlegu réttarkerfi. Ríkisstjórn Trump hafi beitt refsiaðgerðum gegn starfsfólki Alþjóðlega sakamáladómstólsins, rússneskir dómstólar hafi gefið út handtökuskipun gegn sama starfsfólki og nokkur ríki hafi dregið til baka aðild sína að Rómarsáttmálanum.Herinn í Mjanmar hafi sprengt þorp með svifvængjaflugvélum og drepið fjölda óbreyttra borgara.Sameinuðu arabísku furstadæmin hafi útvegað RSF-hersveitunum í Súdan háþróuð vopn frá Kína og þannig kynnt undir átökunum í Súdan.Vopnaði hópurinn M23 hafi náð frekari völdum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó með stuðningi frá Rúanda. Óbreyttir borgarar hafi verið drepnir.Talibanar í Afganistan hafi hert enn frekar aðgerðir sínar gegn konum.Í skýrslunni kemur einnig fram að árásum á borgaralegt samfélag og frjáls félagasamtök hafi fjölgað enn frekar á síðasta ári. Yfirvöld í Nepal og Tansaníu eru þar nefnd sérstaklega þar sem þau hafi bælt niður mótmæli gegn pólitísku ástandi með harðri, og jafnvel banvænni, hendi.Fleiri ríki hafi beitt ofbeldi gegn mótmælum, þar á meðal Bandaríkin, Kína, Egyptaland, Indland og Venesúela. Þetta hafi meðal annars verið gert með misbeitingu hryðjuverkalaga, lögregluofbeldi og aftökum án dóms og laga.Þá er einnig nefnt að aðgerðahópurinn Palestine Action hafi verið bannaður af yfirvöldum í Bretlandi og rúmlega 2.700 manns sem mótmæltu banninu með friðsamlegum hætti verið handteknir.Áfrýjunardómstóll komst seinna að þeirri niðurstöðu að bannið hefði verið ólögmætt. Þá hafi 400 friðsamir mótmælendur verið handteknir eftir að borgarstjóri Istanbúl var hnepptur í varðhald.Mörg önnur dæmi eru nefnd í skýrslunni, meðal annars ólögmætar aðgerðir Bandaríkjanna gegn umsækjendum um alþjóðlega vernd, beiting stjórnvalda í Serbíu á njósnabúnaði gegn mótmælendum og fjölmiðlafólki og kúgunaraðferðir yfirvalda í Kenía til að bæla niður mótmæli ungs fólks.Mótmæli Z-kynslóðarinnar jákvæð þróunÞað er þó ekki eingöngu svartsýnistónn í skýrslunni. Nokkur ríki og stofnanir hafa staðið gegn þessari þróun.Meðal annars hafi sífellt fleiri viðurkennt að Ísraelsmenn fremji hópmorð á Gaza og hafi stutt málsókn Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Ísland hefur gert það síðan í mars. Þá hafi fjöldamótmæli gegn hópmorðinu breiðst út um allan heim.Mótmæli Z-kynslóðarinnar hafi náð til fjölmargra landa og 300 þúsund hafi tekið þátt í gleðigöngunni í Ungverjalandi. Filippseyjar hafi framselt Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseta, til Alþjóðlega sakamáladómstólsins fyrir glæpi gegn mannúð.Evrópuráðið og Úkraína hafi samþykkt að stofna sérstakan dómstól vegna glæpa tengdum innrás Rússa í Úkraínu. Þá hafi Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna sett á laggirnar óháða eftirlitsstofnun fyrir Afganistan.Í skýrslunni hvetja samtökin til þess að láta 2026 vera árið sem fólk sýni áhrif sín. Nú sé kominn tími til að skapa söguna í þágu mannúðar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.