Ársæll hættur sem skólameistari Borgarholtsskóla
March 29, 2026
RÚV
Ársæll Guðmundsson hefur unnið sinn síðasta dag sem skólameistari Borgarholtsskóla. Þetta staðfestir hann í samtali við fréttastofu. Ársæll er skipaður skólameistari út júní en hefur verið í veikindaleyfi síðan í febrúar.Hann segir nokkuð ljóst að það sé lítil eftirspurn innan ráðuneytisins eftir hans starfskröftum og því hafi hann tekið ákvörðun um að snúa ekki aftur til starfa í apríl.
Ársæll gerir ráð fyrir að aðstoðarskólameistari verði settur skólameistari þar til ráðherra skipar í stöðuna. Spurður hvort komið hafi til greina að sækja um stöðuna að nýju svarar Ársæll neitandi.Ráðuneytið sækist ekkert eftir starfskröftum mínum. Ráðherra eða nýr ráðuneytisstjóri hafa hvorug haft samband,“ segir Ársæll.Leitar réttar sínsGuðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi barna- og menntamálaráðherra, tilkynnti það í desember og staðan var formlega auglýst í lögbirtingablaði dómsmálaráðuneytisins fyrr í mánuðinum.Ársæll hefur áður sagt sér nokkuð ljóst að ákvörðunin tengist gagnrýni hans á breytingar í skólunum og samskiptum hans við Ingu Sæland eftir að íþróttaskór barnabarns hennar og nemenda í Borgarholtsskóla týndust í skólanum. Inga var þá félags- og húsnæðismálaráðherra en er í dag barna- og menntamálaráðherra.Hann hefur leitað réttar síns í kjölfarið þar sem hann taldi að brotið hefði verið á sér með auglýsingu starfsins. Hann sóttist eftir því að fara með vitnamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Því var hafnað og hefur Ársæll ákært þá ákvörðun til Landsréttar.Vinnubrögð ráðuneytisins fyrir neðan allar hellurHann segir það vonda tilfinningu að vera afskrifaður með þessum hætti eftir langan feril sem skólastjórnandi og segir vinnubrögð ráðuneytisins fyrir neðan allar hellur.Það er náttúrulega mjög vond tilfinning að þurfa að skilja við eftir alla þessa áratugi og vera afskrifaður bara svona einn, tveir og þrír án nokkurra skýringa. En ég veit svo sem alveg hvað ég hef staðið fyrir og hvað ég hef gert, þannig ég er sáttur við sjálfan mig hvað það varðar. En auðvitað eru vinnubrögðin fyrir neðan allar hellur.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.