Árneshreppur og Kaldrananeshreppur sameinast
March 28, 2026
RÚV
Sveitarfélögin Árneshreppur og Kaldrananeshreppur munu sameinast en lokadagur íbúakosninga um sameiningu þeirra var í dag. Greint er frá atkvæðum í kosningunni í tilkynningu frá sameiginlegri kjörstjórn Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, á vef Kaldrananeshrepps.Í Árneshreppi voru 54 á kjörskrá. 81,48 þeirra greiddu atkvæði, eða 44. Þar af sögðu 25 já við sameiningunni eða 56,81.
18 sögðu nei, eða 40,9, og 1 seðill var auður.Í Kaldrananeshreppi voru 95 á kjörskrá. 58,94 greiddu atkvæði, eða 54. Þar af greiddu 41 atkvæði með sameiningunni eða 73,21. 12 sögðu nei, eða 21,42, og 3 seðlar voru ógildir.Var sameiningin því samþykkt í báðum sveitarfélögunum.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.