70 þúsund máltíðir sem voru á leið í ruslið lentu á matarborðum Íslendinga í fyrra - í gegnum appið Humble, sem á að draga úr matarsóun. Stærstu notendurnir eru hagsýnar húsmæður.Humble er öllum aðgengilegt að kostnaðarlausu og á að hjálpa fyrirtækjum að minnka matarsóun og bjóða upp á matvöru og ýmislegt annað með afslætti. Fyrirtæki geta sett inn vörur sem eru á síðasta snúningi,“ segir Hlynur Rafn Guðmundsson, einn stofnenda og eigenda Humble.Vörurnar eru síðan yfirleitt seldar á um helmings afslætti á um 90 útsölustöðum og eru ýmist sóttar eða sendar.Bakkelsi, brauð og ýmsir réttirUm er að ræða bakkelsi og brauð úr bakaríum, ýmsa rétti af veitingastöðum, matvöru úr matvöruverslunum og snyrtivörur, svo eitthvað sé nefnt. Spurður hvers vegna fyrirtæki selji vöru sína í gegnum Humble segir Hlynur umhverfisvitund vera veigamestu ástæðuna. Það er leiðinlegt að henda mat í ruslið. Síðan fer mikill kostnaður í að henda í ruslið, það er mikill tekjumissir. Þannig að þarna fá fyrirtækin pening fyrir það sem annars hefði endað í sóun.“Yfir 30 tonn af mat, sem að öðrum kosti hefðu endað í ruslinu, voru seld í fyrra í gegnum app sem varð til í covid. Eigandi segir tækifæri í ruslinu.Það eru tækifæri í ruslinuEins og ýmis önnur nýsköpun hófst þetta í covid. Spurður hvers vegna það að draga úr matarsóun sé honum svona mikið hjartans mál segir Hlynur að hann vilji leita allra leiða til að komast hjá sóun. Og síðan eru tækifæri í ruslinu.“Matarsóun á Íslandi var síðast mæld 2022 og reyndist þá vera 60 þúsund tonn á ári, þar af nam sóun frá heimilum, veitingahúsum og smásölum samtals um 30 þúsund tonnum.Hlynur segir að tölur og gögn Humble bendi til þess að á síðasta ári hafi um 31 tonni af matvöru verið bjargað frá því að lenda í ruslinu með því að nota appið. Það eru um 70.000 máltíðir,“ segir hann.Hagsýnar húsmæður eru stærstu notendurnirNú bjóða mötuneyti nokkurra stórra fyrirtækja starfsfólki sínu að kaupa afgangsmáltíðir á lokuðu svæði í appinu – mat sem annars væri hent. Fólk getur þá tekið það með heim og verið með í kvöldmat,“ segir Hlynur.Hann segir að um 32.000 noti appið, sem eins og er er eingöngu fyrir íslenskan markað. Við höfum tekið eftir að þetta eru hagsýnu húsmæðurnar sem eru langmest að nýta sér þetta.“Hlynur segir sífellt verið að leita nýrra leiða til að draga úr sóun. Það eru gríðarleg tækifæri alls staðar.“
March 27, 2026