Advertisement
Allt á kafi í snjó og stuði á Sigló
World

Allt á kafi í snjó og stuði á Sigló

April 3, 2026
RÚV
Scroll

Aðstæður á skíðasvæðum eru með ágætum víðast hvar á landinu í dag og fjöldi fólks hefur gert sér ferð í brekkur líkt og hefð er fyrir yfir páskana. Það á meðal annars við á Siglufirði en bærinn er fullur af skíðafólki.Fréttastofa náði tali af Birgi Egilssyni, svæðisstjóra í Skarðsdal.Ég myndi segja að það væri gífurlegur fjöldi af fólki hérna þar sem að bílastæðið okkar pakkaðist upp á bara svipstundu og það er lagt hérna lengst niður í brekkur.

Allt á kafi í snjó og stuði á Sigló

Aðstæður eru bara prýðilegar. Það er mjög gott veður og mikil blíða þannig lagað. Sólin skín svona létt í gegnum skýin,“ segir Birgir.Þó hefur ekki tekist að opna allar skíðalyftur í Siglufirði en efsta lyftan í Skarðsdal, bungu-lyfta, er lokuð vegna gífurlega mikils snjómagns.Það reyndist eitthvað meiri snjór en þið viljið hafa?Við náttúrulega viljum alltaf nóg af snjó en við þurftum ekki alveg svona mikið sko. Það eru hérna hátt í átta metra stæður eftir að blásarinn var að blása snjó frá og svona. Þannig að þetta eru bara svona stálveggir í kringum okkur.“Birgir vonar að hægt verði að opna lyftuna um helgina.Annað hvort í dag, morgun eða á sunnudag. Ég get ekki lofað neinu með það af því að það var svo gífurlegt snjómagn hjá henni að það var svo mikil vinna sem þurfti að fara í gang, bæði á lyftunni sjálfri vegna mikils hvassviðris þarna uppi og líka bara vegna gífurlegs snjómagns.“Þó að sólin skíni í brekkunni í Skarðsdal í dag er spáin ekki svo góð um helgina.Hún mætti lofa betra veðri. Þetta getur brugðið beggja vegna og smá tvísýnt en við reynum okkar besta náttúrulega við að hafa opið. Þannig að við tökum þetta yfirleitt bara dag fyrir dag. Spáin er þannig núna.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More