Advertisement
Allt á að vera til reiðu fyrir sögulega ferð NASA að tunglinu
World

Allt á að vera til reiðu fyrir sögulega ferð NASA að tunglinu

April 1, 2026
RÚV
Scroll

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að þrír karlmenn og ein kona leggi í kvöld upp í fyrstu mönnuðu ferðina að tunglinu síðan árið 1972. Óvæntar bilanir hafa valdið talsverðum töfum á Artemis tveir leiðangri bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA eftir áralangan undirbúning. Kostnaður hefur einnig farið úr böndunum.Upphaflega stóð til að leggja í hann í febrúar og aftur í mars og nú segja vísindamenn NASA allt til reiðu fyrir tunglskot klukkan 22:24 að íslenskum tíma.

Allt á að vera til reiðu fyrir sögulega ferð NASA að tunglinu

Búist er við að hringferðin um tunglið taki um tíu daga fyrir Bandaríkjamennina Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt Kanadamanninum Jeremy Hansen.Ferðin markar nokkur tímamót; Koch er fyrsta konan sem tekur þátt í tunglferð, Glover er fyrsti svarti tunglfarinn og Hansen sá fyrsti sem ekki er bandarískur. Þetta verður jafnframt jómfrúrferð voldugrar SLS-tunglflaugarinnar með mannað far, sem er lykillinn að nýrri tunglferðaáætlun Bandaríkjanna.Mönnuð tunglferð er áætluð 2028. Markmiðið er að koma þar upp varanlegri bækistöð sem leggur grunn að frekari landvinningum í sólkerfinu.Næsta verkefni NASA er mannaðar ferðir til reikistjörnunnar Mars, þar sem vísindamenn telja meðal annars líkur á að finna vísbendingar um líf. Verði ekki af tunglskotinu í kvöld opnast gluggi aftur sjötta apríl en veðurútlitið er heldur verra síðar í vikunni.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More