0
Allir framboðslistar á einum stað
April 17, 2026
Posted 2 hours ago by
Landskjörstjórn hefur birt alla framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem verða haldnar 16. maí. Framboðsfrestur rann út fyrir viku og yfirkjörstjórnir sveitarfélaga hafa staðfest framboðslista.Listarnir eru alls 178 í 50 sveitarfélögum og á þeim eru 3.156 frambjóðendur.Upplýsingar um framboðslista hafa verið teknar saman hér á vefnum Kosning.is.Sveitarstjórnarkosningar verða ekki haldnar í fjórum sveitarfélögum því aðeins einn listi kom fram í hverju þeirra áður en framboðsfrestur rann út.
Sá listi verður því sjálfkjörinn í viðkomandi sveitarfélagi. Þau eru eftirfarandi.Kjósarhreppur: A-listi – Íbúar í KjósSnæfellsbær: D-listi – SjálfstæðisflokkurinnTjörneshreppur: T-listi – TjörneslistinnVopnafjarðarhreppur: O-listi – Sterk StoðÍ sveitarfélögum þar sem engir framboðslistar komu fram verður óbundin kosning. Þar eru allir kjósendur í viðkomandi sveitarfélagi í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Óbundin kosning verður haldin í sjö sveitarfélögum.ÁsahreppiDalabyggðEyja- og MiklaholtshreppiFljótsdalshreppiGrýtubakkahreppiKaldrananeshreppiLanganesbyggð.Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí og helstu upplýsingar um kosningarnar má nálgast hér. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst í dag fyrir þá sem geta ekki kosið á kjördag. Helstu upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má sjá hér.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.