0
Aldrei meira kókaín á Íslandi
April 14, 2026
Posted 3 hours ago by
Það er bara búinn að vera krakkfaraldur. Það er aðallega þráhyggjan í krakkið, það er þessi þráhyggja þar sem þú trúir því að þú þurfir alltaf einn í viðbót, bara einn smók“ í viðbót, bara eitt stykki í viðbót,“ segir viðmælandi í fréttaskýringaþættinum Kveik í kvöld. Þar verður fjallað um stríðið gegn fíkniefnum á Íslandi og stóraukna neyslu á krakki.Krakk er kókaín sem er blandað með ákveðnum hætti svo hægt sé að reykja efnið.
Um helmingur skjólstæðinga Matthildarsamtakanna reykir krakk reglulega. Samtökin sérhæfa sig í að aðstoða þá sem reykja vímuefni.Síðan erum við með hóp af fólki sem er bara með mjög mikinn kókaínvanda og er með mikla þráhyggju og er bara stöðugt í því að reyna að verða sér úti um næsta skammt,“ segir Svala Jóhannesdóttir formaður samtakanna.Margir tala um að þetta sé eins og himnarnir opnist. Þetta er stutt víma. Aðeins of stutt,“ segir annar viðmælandi Kveiks sem reykir krakk reglulega.Sprenging í fyrraÞessi mikla neysla á krakki skýrir að minnsta kosti að hluta hvers vegna eins mikið af kókaíni er flutt til landsins og raun ber vitni. Í fyrra var hald lagt á rúmlega 106 kíló af kókaíni, sem var rúmlega tvöföldun frá árinu áður.Það varð hreinlega sprenging á síðasta ári í fjölda stórra innflutningsmála sem komu í gegnum Keflavíkurflugvöll og það var algjört metár hvað varðar þyngd og magn efna,“ segir Vignir Örn Oddgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á stoðsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði, segir að þrátt fyrir að lögreglan standi sig vel í baráttunni gegn innflutningi og sölu á fíkniefnum sé nauðsynlegt að endurskoða fíkniefnalöggjöfina.Í raun og veru, til lengri tíma, þá virðast þessar haldlagningar ekki skila miklu. Við sjáum að neyslan er mjög útbreidd í samfélaginu öllu,“ segir Helgi.Í Kveik í kvöld verður ítarlega fjallað um stríðið gegn fíkniefnum á Íslandi og mikla neyslu á krakki, auk þess sem skyggnst verður inn í störf tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þátturinn hefst klukkan 20:15.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.