Albanese segir stríðsmarkmiðum náð og hvetur Ísrael og Bandaríkin til að slaka á
April 2, 2026
RÚV
Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu hvetur Bandaríkin og Ísrael til að draga úr árásum á Íran. Helstu markmiðum sé náð og efnahagur heimsins þoli ekki við til lengdar. Albanese sagði í ræðu sem hann hélt í höfuðborginni Canberra að öllum helstu markmiðum hernaðarins gegn Íran sé náð.Hann segir allan herafla Írana orðinn í lamasessi, hvort sem er á landi, legi eða í lofti.
Óljóst sé hverju megi áorka með áframhaldandi árásum.Hins vegar sé deginum ljósara að því lengur sem stríðið dragist á langinn því þyngri verði byrðarnar á efnahag heimsins. Albanese hefur ítrekað sagt að Ástralía vilji ekki dragast inn í átökin.Áströlsk stjórnvöld hafa reynt að milda höggið af síhækkandi eldsneytisverði með því að lækka álögur á það og loforðum um lán til fyrirtækja í kröggum. Ástralir reiða sig á innflutt eldsneyti og eiga birgðir til um það bil 37 daga.Varnarmálaráðherrann Richard Marles sagðist í gær hafa rætt við Breta og Frakka um leiðir til að opna fyrir siglingar um Hormússund að nýju. Mánaðarlöng lokun þess hefur valdið mikilli verðhækkun á gasi og hráolíu.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.