0
Ágúst vann fimmfalt og Thelma tvöfalt
April 19, 2026
Posted 2 hours ago by
Íslandsmótinu í áhaldafimleikum lauk í dag með keppni á stökum áhöldum. Ágúst Ingi Davíðsson bar af í karlaflokki og vann fimm af sex áhöldum, auk þess að taka brons í því sjötta.Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvö áhöld af fjórum í kvennaflokki. Thelma vann keppni á slá og gólfi. Í gær urðu þau Ágúst og Thelma Íslandsmeistarar í fjölþraut.Auður Anna Þorbjarnardóttir úr Stjörnunni vann keppni í stökki og Lilja Katrín Gunnarsdóttir úr Gerplu vann tvíslá.
Lilja varð í öðru sæti í fjölþraut í gær.Hér má sjá helstu tilþrif dagsins auk viðtala.Ágúst Ingi Davíðsson varð í dag fimmfaldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvær greinar. Keppt var á stökum áhöldum í dag.Efstu þrjár í kvennaflokkiGerplukonur unnu þrjú áhöld og áttu flest sæti á palli. Auður Anna og Rakel Sara úr Stjörnunni tóku gull og silfur í stökki. Þá var Sigurrós Ásta Þórisdóttir í þriðja sæti á gólfi.Minnstur var munurinn á tvíslá þar sem aðeins munaði 0,033 stigum á Lilju Katrínu og Thelmu. Þá náði Agnes Suto bronsi og sýndi þar í hvað henni býr.StökkAuður Anna Þorbjarnardóttir, Stjarnan – 12.066 stigSigurrós Ásta Þórisdóttir, Gerpla – 11.933 stigRakel Sara Pétursdóttir, Stjarnan – 11.900 stigTvísláLilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla – 12.033 stigThelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla – 12.000 stigAgnes Suto, Gerpla – 10.933 stigJafnvægissláThelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla – 12.366 stigLilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla – 12.200 stigRakel Sara Pétursdóttir, Gerpla – 11.766 stigGólfThelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla – 12.333 stigLilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla – 11.766 stigSigurrós Ásta Þórisdóttir, Stjarnan – 11.666 stigÖll úrslit dagsins í kvennaflokkiEfstu þrír í karlaflokkiÁgúst Ingi vann allar greinar nema hestinn.Í stökki vann Sigurður Ari Stefánsson sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á stöku áhaldi í fullorðinsflokki. Hann og Ágúst enduðu jafnir og fengu báðir gull.Dagur Kári Ólafsson keppti einungis á hesti eftir meiðsli á tvíslá í gær. Hann stóð uppi sem sigurvegari en er meiddur á öxl.Gerpla átti alla sigurvegara dagsins en Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni vann silfur í hringjum. Jón féll í afstökki sínu í lokin eftir ágætis æfingu.Þá náði Lúkas Ari Ragnarsson úr Björk á pall í tveimur greinum.GólfÁgúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 13.450 stigMartin Guðmundsson, Gerpla – 12.700 stigJónas Ingi Þórisson, Gerpla – 12.650 stigHesturDagur Kári Ólafsson, Gerpla – 12.250 stigSigurður Ari Stefánsson, Gerpla – 11.800 stigÁgúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 11.350 stigHringarÁgúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 12.900 stigJón Sigurður Gunnarsson, Ármann – 12.200 stigMartin Guðmundsson, Gerpla – 12.150 stigStökkDeildu fyrsta sæti: Sigurður Ari Stefánsson – 12.650 stig og Ágúst Ingi Davíðsson – 12.650 stigÞriðja sæti. Atli Snær Valgeirsson – 12.475 stigTvísláÁgúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 12.950 stigAtli Snær Valgeirsson, Gerpla – 12.850 stigLúkas Ari Ragnarsson, Björk – 12.550 stigSláÁgúst Ingi Davíðsson, Gerpla – 12.950 stigAtli Snær Valgeirsson, Gerpla – 12.900 stigLúkas Ari Ragnarsson, Björk – 11.400 stigÖll úrslit dagsins í karlaflokki.Útsending dagsinsHér má sjá útsendingu dagsins.Ágúst Ingi Davíðsson varð í dag fimmfaldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og Thelma Aðalsteinsdóttir vann tvær greinar. Keppt var á stökum áhöldum í dag.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.