Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi
World

Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi

April 9, 2026
RÚV
Scroll

Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður, kórstjóri, hljómsveitarstjóri og tónskáld, nam tónsmíðar við Franz Liszt-akademíuna í Búdapest. Hann heimsækir Ungverjaland og dvelur þar árlega, talar tungumálið og á fjölda vina og kunningja í landinu. Hann fræddi hlustendur Heimsgluggans um ungversk stjórnmál.Kannanir benda til sigurs stjórnarandstöðunnarFlestar kannanir benda til þess að stjórnarandstöðuflokkurinn Tisza fái umtalsvert fleiri atkvæði en stjórnarflokkurinn Fidesz.

Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi

Kosningabaráttan hefur verið hörð og Viktor Orbán forsætisráðherra hefur útmálað Evrópusambandið og Úkraínu sem helstu óvini Ungverjalands og kjósendur verði að velja Fidesz-flokkinn til að verja landið gegn þessum fjendum. Árangur þessarar hræðsluherferðar virðist takmarkaður ef marka má nýja könnun sem Reuters-fréttastofan fjallaði um. Samkvæmt henni gæti Tisza fengið tvo þriðju hluta þingsæta.Varaforseti Bandaríkjanna lagði Orbán liðJD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, kom í heimsókn til Búdapest í vikunni til að leggja Viktor Orbán lið í kosningabaráttunni. Hann sakaði skriffinna Evrópusambandsins um að reyna að eyðileggja efnahag Ungverjalands og ein verstu afskipti af kosningum í erlendu ríki sem hann hefði nokkru sinni orðið vitni að. Vance lýsti svo eindregnum stuðningi sínum og Donalds Trump Bandaríkjaforseta við Orbán. Fréttaskýrendur hafa bent á að mikil hræsni felist í því að saka aðra um afskipti en taka svo grímulausa afstöðu með sitjandi stjórn.Telur heimsókn varaforsetans ekki skipta miklu máliGunnsteinn Ólafsson telur ekki að heimsókn JD Vance og stuðningsyfirlýsingar Bandaríkjastjórnar skipti sköpum í kosningabaráttunni. Hann telur að orð Vance snúist upp í andhverfu sína og virki á Ungverja sem stuðningsyfirlýsing við Magyar, þjóðin sjái í gegnum svona bull.Orbán hefur notið mikillar hylli á landsbyggðinniGunnsteinn segir að Viktor Orbán hafi notið mikillar hylli, sérstaklega á landsbyggðinni, og verið sterki leiðtoginn sem þjóðin taldi sig þurfa á að halda. Orbán hafi komið stuðningsfólki sínu að í lykilstöður í dómskerfi, skólum og dómstólum. Hann hafi staðið fyrir auglýsingaherferðum um allt land með pólitískum áróðri til að styrkja stöðu sína. Undanfarin 16 ár hafi verið mikil sigurganga hjá honum. Hann hafi styrkt sig með því að byggja íþróttahallir og knattspyrnuvelli út um allt land. Þetta hafi verið að miklu leyti byggt upp fyrir fé frá Evrópusambandinu og þess vegna skjóti skökku við að hann telji Evrópusambandið helsta óvin sinn. Án ESB hefði lítið gerst í Ungverjalandi síðustu áratugina.ESB hefur haldið eftir greiðslumEvrópusambandið hefur haldið eftir greiðslum vegna þess að Ungverjar hafi ekki fylgt reglum sambandsins. Gunnsteinn segir þessa upphæð nema 20 milljörðum evra, nærri þrjú þúsund milljörðum íslenskra króna. Þetta hafi til dæmis komið niður á vísindastarfi. Gunnsteinn segir Ungverja tiltölulega fátæka þjóð og fólk á landsbyggðinni miklu fátækara en fólk í Búdapest. Lágmarkslaun í Ungverjalandi séu 125 þúsund krónur á mánuði og meðallaun um 300 þúsund.Péter Magyar skaut upp á stjörnuhimininnPéter Magyar, leiðtogi Tisza-flokksins, var áður innanbúðarmaður hjá Orbán. Gunnsteinn segir hann hafa sagt af sér eftir hneyklismál sem kostaði bæði Katalin Novák, forseta Ungverjalands, og Judit Varga, dómsmálaráðherra, stöður sínar. Varga er raunar fyrrverandi eiginkona Magyars. Eftir að Magyar sagði skilið við Fidesz og gekk til liðs við Tisza ljóstraði hann upp um ýmiss konar spillingu og hneyklismál. Eftir að Magyar varð leiðtogi Tisza gekkst hann fyrir fjöldafundum, mótmælagöngum og fleiri samkomu og fylgi flokksins jókst mikið. Hálf milljón hefði sótt útifund í Búdapest fyrir skömmu.Verður erfitt að breytaGunnsteinn Ólafsson segir að verði stjórnarskipti í Ungverjalandi bíði nýrrar stjórnar erfitt verkefni. Viktor Orbán hafi sett sitt fólk í allar lykilstöður. Með nýrri stjórn verði gríðarlegt uppgjör í landinu, ekki verði létt verk að hreinsa til í til dæmis dómskerfinu, hann óttist að það fyrstu mánuðirnir verði erfiðir. Fjölmiðlar séu gegnsýrðir af pólitískum fulltrúum Orbáns, þetta verði mjög erfitt.Hér má heyra Heimsglugga vikunnarViktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Bogi Ágústsson ræddi við Gunnstein Ólafsson í Heimsglugganum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More