Ætla að verja tíu milljónum eflingu tónleikastaða
0
World

Ætla að verja tíu milljónum eflingu tónleikastaða

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Borgarráð hefur samþykkt tillögu um endurreisn Úrbótasjóðs tónleikastaða og verða tíu milljónir settar í sjóðinn til úthlutunar á þessu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Markmiðið er að efla tónleikastaði í miðborginni. Tveimur milljónum verður varið í að byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm fyrir 12-18 hljómsveitir.Spretthópur um lifandi tónlistarflutning í Reykjavík skilaði tillögum til aðgerða í lok febrúar.

Ætla að verja tíu milljónum eflingu tónleikastaða

Hópnum var ætlað að meta stöðu lifandi tónlistarflutnings í borginni og gera tillögur um bætta aðstöðu til tónleikahalds tónlistarfólki, tónleikastöðum, almenningi og ferðafólki til heilla. Niðurstöður sýna að tónleikastaðir búa við kerfislægan rekstrarvanda og spretthópurinn telur aðgerða þörf svo núverandi aðstaða til lifandi tónlistarflutnings í miðborg Reykjavíkur setji ekki svip sinn á íslenskt tónlistarlíf næstu áratugi. Fram kemur að mikilvægt sé að auka sýnileika og aðgengi að lifandi tónlist og að með markvissum aðgerðum megi snúa þróuninni við og styrkja aðstöðu íslenskrar tónlistar.Vilja að tónleikastaðir verði viðurkenndir sem mikilvægir menningarlegir innviðirSpretthópurinn skilaði fjórum tillögum um aðgerðir. Ein þeirra var að endurvekja úrbótasjóð tónleikastaða sem var starfræktur á árunum 2020-2022 við góðar undirtektir. Hlutverk hans var að styðja við litla og meðalstóra tónleikastaði í Reykjavík og menningarhús sem sinna lifandi tónlistarflutningi.Fram kemur að styrkir úrbótasjóðsins hafi haft langvarandi og kröftug áhrif. Á fundi menningar- og íþróttaráðs 10. apríl var samþykkt að endurvekja hann og setja í hann 10 milljónir króna til úthlutunar á þessu ári.Öðrum tillögum spretthópsins verður vísað til borgarráðs. Þær fela meðal annars í sér einföldun fá leyfisveitingaferli tónleikastaða og að tónleikastaðir verði viðurkenndir sem mikilvægir menningarlegir innviðir.Tónlistarborgin Reykjavík hyggst einnig styðja við Hafnarhaus í uppbyggingu æfingarrýma. Þar verða fjögur æfingarrými fyrir 12 til 18 hljómsveitir skipaðar tónlistarfólki á aldrinum 15-30 ára með sameiginlega aðstöðu með sviði og upptökuveri.Tekið er fram Tónlistarborgin hafi undanfarið ár breytt áherslum í verkefnum sínum í takt við þarfir tónlistarsamfélagsins. Skort hafi aðstöðu til æfinga og lifandi tónlistarflutnings og því hafi Tónlistarborgin fært stuðning frá verkefnum sem komin eru vel á veg, til verkefna sem tengjast beint æfingaaðstöðu og lifandi tónlistarflutningi.Stuðningur við æfingaaðstöðu í Hafnarhausi sé þó alls ótengdur aðgerðum Tónlistarþróunarmiðstöðvar heldur komi úr fjárhagsramma Tónlistarborgarinnar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More