Aðgerðir ríkisstjórnarinnar dugi skammt
April 10, 2026
RÚV
Ríkisstjórnin kynnti skammtímaaðgerðir sínar í efnahagsmálum í dag. Stjórnarandstaðan telur aðgerðirnar ekki duga til að minnka verðbólgu.Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir sín fyrstu viðbrögð að jákvætt sé að forsætisráðherra viðurkenni loksins vandann og að það hafi ekki tekist að lækka verðbólgu.Og þess vegna hafi vextir hækkað á ný og planið er augljóslega ekki að virka.
Ég held hins vegar að þetta muni ekki duga til að lækka verðbólguvæntingar, segir Lilja sem telur að mun umfangsmeiri aðgerðir þurfi til í samvinnu við vinnumarkaðinn. Og alla sem koma að hagstjórn á landinu til þess að ná þessum verðbólguvæntingum og verðbólgu niður,“ segir Lilja sem telur að ríkisstjórnin þurfi að leggja mun harðar að sér til að ná árangri.Til stendur að virðisaukaskattur á eldsneyti lækki úr 24 prósentum í 11 prósent, vöktun á verðlagningu verður aukin og hleðslustöðvum fjölgað. Aðgerðirnar gilda frá 1. maí til 31. ágúst.Einungis viðbragð við stríðinu við PersaflóaSigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, telur aðgerðirnar ekki mæta þeim væntingum sem til þeirra voru gerðar.Þetta er í rauninni bara tímabundin aðgerð sem snýr að tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti,“ segir Sigmundur sem telur aðgerðirnar einungis vera viðbragð við stríðinu við Persaflóa. Ríkisstjórnin hafi hins vegar verið búin að boða það fyrir nokkru síðan að eftir páska kæmu aðgerðir í efnahagsmálum.Maður hlýtur bara að spyrja sig: Hversu lengi þurfa þau að velta hlutunum fyrir sér? Þetta er búið að vera svarið í hvert einasta skipti sem hrakspár rætast, að þau séu að fylgjast með og ætli að fara að gera eitthvað. Svo kemur þessi tilkynning sem menn hafa beðið eftir lengi, eftirpáskatilkynningin, og þá er hún bara um afmarkaðar bráðabirgðaráðstafanir vegna stríðsátaka við Persaflóa,“ segir Sigmundur.Ríkið sjálft valdi verðbólgu og haldi ekki áætlunGuðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkið sjálft hafa ýtt undir verðbólgu.Við vorum búin að vara við því, stjórnarandstaðan, í fjárlagaumræðunni fyrir jól að krónutöluhækkanir, að fara með krónutöluhækkanir yfir verðbólgumarkmið, myndu ýta undir verðbólguna, að kílómetragjöldin myndu ýta undir verðbólguna,“ segir Guðrún sem segir að sér hafi fundist fundurinn fremur rýr.Efnislega vil ég segja það að ríkisstjórnin sem tönglast á því að vera með plan, hún sér núna að planið er komið út í skurð og þá er allt í einu kynnt aukaplan sem gengur út á það að halda sem fastast í gamla planið sem ekki virkar,“ segir Guðrún sem segist hafa hlustað á forsætisráðherra deginum áður á ársfundi Seðlabankans. Þar hafi hún margítrekað að ríkisstjórnin myndi ekki víkja frá sinni áætlun.12 tímum seinna er orðinn blaðamannafundur þar sem er talað um að það sé komið annað plan,“ segir Guðrún sem telur að lækkun á virðisaukaskatti úr 24 í 11 á eldsneyti muni hafa einhver áhrif en minnir á að heimsmarkaðsverð á olíu sveiflist mikið þessa daga.Það verður lítið mál fyrir olíufélögin að skila lækkun virðisauka en olíufélögin eru samt sem áður sett í alveg ómögulega stöðu þegar breytingar á heimsmarkaði sveiflast svona mikið,“ segir hún.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.