83% sveitarfélaga eru með útsvarið í botni
0
World

83% sveitarfélaga eru með útsvarið í botni

April 20, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

51 af 61 sveitarfélagi landsins leggur hámarksútsvar á íbúana, þar af eru tvö á höfuðborgarsvæðinu.Útsvarið er stærsti tekjustofn sveitarfélaganna og á síðasta ári voru tekjur þeirra af tekjum og hagnaði íbúanna samtals um 410 milljarðar króna. Hámarksútsvarsprósenta er 14,97 og lágmarkið er 12,44. Þetta er skilgreint í sveitarstjórnarlögum og sveitarstjórnir þurfa að ákveða fyrir 1.

83% sveitarfélaga eru með útsvarið í botni

desember hver prósentan verður árið á eftir.Útsvarið er skrúfað í botn hjá flestum sveitarfélögum landsins, þar af tveimur á höfuðborgarsvæðinu. Lægsta útsvarsprósentan á höfuðborgarsvæðinu er á Seltjarnarnesi.Skattaparadísin FljótsdalshreppurEitt sveitarfélag á Íslandi leggur á lágmarksútsvar, þessi skattaparadís er Fljótsdalshreppur þar sem búa rúmlega hundrað manns.Tvö af þeim sveitarfélögum sem eru með útsvarið í botni eru á höfuðborgarsvæðinu, það eru Reykjavík og Mosfellsbær. Hafnarfjörður og Kópavogur eru litlu lægri – með 14,93, Garðabær með 14,71 og Seltjarnarnes er það sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem er með lægsta útsvarið: 14,54.Hækka, lækka eða standa í stað?Og það eru skiptar skoðanir hjá oddvitum flokkanna sem bjóða þar fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor hvort því verði breytt.Við erum stoltir af þessu, að vera lægstir og munum halda því áfram, segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og oddviti Sjálfstæðismanna þar í bæ, og aftekur með öllu að útsvarsprósentunni verði breytt og ekki sé ráðlegt að lækka hana.Í sama streng tekur Skafti Harðarson sem er oddviti Miðflokksins á Seltjarnarnesi. Ég reikna með að við stöndum ekki fyrir öðru að sinni en að halda því óbreyttu,“ segir Skafti. Hækkunin, ef við færum upp í fullt útsvar, væri upp á ef mér reiknast rétt til 130 milljónir. Það er ekki sá biti í rekstri sveitarfélagsins að ég vilji taka það úr vösum íbúanna.“Kristinn Ólafsson er oddviti framboðs Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Ég held að það sé óhætt að segja að skatttekjur per haus á Seltjarnarnesi séu þær hæstu á landinu,“ segir Kristinn. Ég held að það sé óábyrgt að segja að við munum ekki gera neitt, við munum allavegana þurfa að skoða málið mjög vel.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More