80 ára vegur fær þúsund tonn af malbiki og hringtorg
0
World

80 ára vegur fær þúsund tonn af malbiki og hringtorg

April 21, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Nýtt malbik og hringtorg opna nýja leið í Urriðaholt. Áttræður Flóttamannavegurinn fær tímabæra endurnýjun.Flóttamannavegurinn sem bandaríski herinn lagði fyrir áttatíu árum fær andlitslyftingu að hluta með þúsund tonnum af malbiki. Ný leið opnast í Urriðaholt.Það er ekki bara lóan sem boðar vorið; það eru líka vegaviðgerðir, holufyllingar og lyktin af heitu malbiki.

80 ára vegur fær þúsund tonn af malbiki og hringtorg

Við getum sagt að vertíðin sé að byrja núna. Komin sól, páskarnir búnir og þá byrjar þetta,“ segir Örn Pétursson. sviðsstjóri framkvæmda hjá malbikunarfyrirtækinu Colas, en nú hefst annasamur tími hjá slíkum fyrirtækjum í vegavinnu og gatnaviðgerðum.Í dag hófust framkvæmdir við Flóttamannaveginn og hann var fræstur. Við erum að fræsa niður í burðarlög til að styrkja svo veginn áður en við malbikum hann,“ segir Örn.Umferð um Flóttamannaveginn hefur aukist með fjölgun íbúa í efri byggðum, um hann fara um 4.000 bílar á dag, en hann var ekki lagður fyrir svo mikla umferð.Vegur margra nafnaVegurinn kallast reyndar líka Ofanbyggðavegur og Elliðavatnsvegur. Hann liggur frá Setbergslandi í Hafnarfirði að Vatnsenda í Kópavogi og var lagður af bandaríska hernum fyrir um 80 árum. Maður getur sagt að þetta sé einn af þessum vegum sem hafa fallið á milli skips og bryggju,“ segir Örn.Áætlaður kostnaður er um 115 milljónir. Framkvæmdirnar ná yfir hluta vegarins og á meðan er hann lokaður á milli Kaldárselsvegar í suðri og afleggjarans að Heiðmörk í norðri.Gamla malbikið er endurnýttOpnuð verður ný leið inn í Urriðaholtshverfið með hringtorgi, en þangað er nú aðeins ein leið fyrir þá 4.500 íbúa sem þar búa.Óskar Ólafsson framkvæmdastjóri jarðvinnufyrirtækisins Óskataks segist vonast til að hægt verði að hleypa umferð á hringtorgið, og þann vegkafla sem nú er lokaður, 15. maí.Í svona verk þarf mikið af malbiki - eða um þúsund tonn að sögn Arnar. Og það gamla, sem er fræst af nýtist áfram. Við nýtum það sem styrktarefni. Þegar búið er að brjóta það niður er það mjög gott og þjappast vel. Það er góður burður í þessu,“ segir Óskar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More