8 milljónir mótmæltu Bandaríkjaforseta
March 29, 2026
RÚV
Talið er að um átta milljónir manna hafi tekið þátt í mótmælum víða í Bandaríkjunum í gær gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta undir merkjum No Kings eða Engir konungar. Alls voru um 3.300 viðburður skipulagðir vítt og breitt um 50 ríki Bandaríkjanna.Mótmælendur hafa einkum gagnrýnt Trump fyrir einræðistilburði, harðar aðgerðir gegn innflytjendum og árásir Bandaríkjanna á Íran.
Er þetta í þriðja sinn sem boðað er til mótmæla Engra konunga síðan Trump var skipaður forseti í annað sinn í janúar 2025.Fyrstu skipulögðu mótmæli hreyfingarinnar voru í júní á 79 ára afmæli forsetans. Síðari mótmælagangan var í október og talið er að um sjö milljónir manns hafi tekið þátt í mótmælunum þá. Bandaríkjaforseti ver helginni á Flórída. Hann hefur ekki enn tjáð sig um mótmælagönguna, hvorki á samskiptamiðlinum Truth Social eða í fjölmiðlum, þegar þetta er skrifað.De Niro og Springsteen meðal mótmælendaÍ New York söfnuðust tugir þúsunda mótmælenda saman. Þeirra á meðal var leikarinn Róbert De Niro en hann hefur verið harður gagnrýnandi Trumps um áraraðir. De Niro sagði nauðsynlegt að stöðva forsetann og það sé það sem Engir konungar snúist um.Það verður að stöðva Trump og það er það sem Engir konungar“ snúast um því hann getur ekki staðið í öllu þessu rugli sem hann hefur verið að gera án samráðs þingsins og óþokkanna í stjórn hans. Þeir sýna honum tryggð af ótta við að missa störf sín, sitt eigið vald. Það er djöfullegt.“Talið er að um átta milljónir manna hafi tekið þátt í mótmælum vítt og breitt um 50 ríki Bandaríkjanna í gær. Leikarinn Robert De Niro sagði nauðsynlegt að stöðva forsetann.Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen hélt stutta ræðu og tók lagið fyrir mótmælendur í Minneapolis. Hann sagði að ICE-liðar hefðu komið með dauða og hrylling á götur Minneapolis en þeir höfðu valið ranga borg. Krafturinn og samstaðan í Minneapolis og Minnesota var innblástur fyrir fólk um öll Bandaríkin. Hann sagði styrk og skuldbindingu íbúanna vera hin sönnu Bandaríki.Talið er að um átta milljónir manna hafi tekið þátt í mótmælum vítt og breitt um 50 ríki Bandaríkjanna í gær. Leikarinn Robert De Niro sagði nauðsynlegt að stöðva forsetann.Mótmæli gegn Bandaríkjaforseta hafa einnig farið fram utan Bandaríkjanna, meðal annars í Amsterdam, Madrid og Róm þar sem um 20.000 tóku þátt í göngunni undir vökulu auga lögregluyfirvalda.Ánægja með Trump mælist um 40 í Bandaríkjunum. Þingkosningarnar eru fram undan í nóvember en búist er við að Repúblikanar tapi bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni á bandaríska þinginu í kosningunum.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.