Advertisement
45 kíló af kókaíni fundust í sendibíl
World

45 kíló af kókaíni fundust í sendibíl

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Lögregla lagði hald á 45 kíló af kókaíni í sendibíl sem kom með Norrænu á föstudag. Þetta herma heimildir fréttastofu. Það er mesta magn kókaíns sem tekið hefur verið hér á landi. Áður hefur verið reynt að smygla 100 kílóum til landsins, en efnin voru stöðvuð áður en þau komu til landsins.Lögreglan á Austurlandi greindi frá því í morgun að einn hefði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna smyglsins.

45 kíló af kókaíni fundust í sendibíl

Hún greindi ekki frá því hversu miklu hefði verið smyglað eða hvers kyns fíkniefnum, aðeins að það væri umtalsvert magn.Lögregla og tollverðir voru flutt austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til að aðstoða við aðgerðirnar.Einn maður var handtekinn, yfirheyrður og síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald í tvær vikur á meðan smyglið er rannsakað. Hann er vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Tilraunir til smygls á kókaíni hafa orðið tíðari og stórtækari síðustu ár en áður var. Reglulega er fólk dæmt fyrir að reyna að smygla hálfu til einu kílói af kókaíni í farangri þegar það kemur fljúgandi til landsins.Í samantekt fréttastofu 2019 var farið yfir þróun kókaínsmygls. Í stóra kókaín-málinu sem varð landsfrægt 1988 var innan við einu kílói af kókaíni smyglað. Annað smygl fékk sama heiti 1993 og þá hafði rúmlega einu kílói verið smyglað, um fertugasta hluta þess sem heimildir fréttastofu herma að hafi átt að smygla með sendibílnum á föstudag.2007 var reynt að smygla 3,7 kílóum frá Þýskalandi og 2017 4,7 kílóum frá Spáni.Stórar tilraunir til smygls uppgötvuðust 2019. Tveir ungir Íslendingar reyndu að smygla 16 kílóum með flugi frá Þýskalandi. Þjóðverji og Rúmeni voru með um fimm kíló í bíl fullum af 40 kílóum af margvíslegum fíkniefnum. Tveir Þjóðverjar voru svo teknir með 5,5 kíló sama ár.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More