4000 símtöl borist til að athuga hvort síminn virki
April 9, 2026
RÚV
Lokaáfangi lokana á þrjú-G farsímakerfinu á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi hófst í gær. Fjarskiptastofa leggur áherslu á að ná til allra þeirra sem eiga símtæki sem styðjast aðeins við þrjú-G, til að tryggja að fólk geti náð sambandi við neyðarþjónustu.Ólafur Aðalsteinsson, sviðstjóri innviðasviðs hjá Fjarskiptastofu, segir lokanirnar hafa gengið vel.
Fjarskiptafyrirtæki hafi orðið vör við aukið álag, símtölum til þeirra hafi fjölgað um 15 til 20 prósent vegna lokananna.Það er mjög jákvætt,“ segir Ólafur. Þetta sýnir það að hópurinn sem við viljum ná til, hann er farinn af stað.“Fólk getur hringt í númerið 1280 til að ganga úr skugga um hvort símar þess dugi áfram til neyðarsímtala eftir að þrjú G-kerfinu hefur verið lokað. Síðan númerið var opnað þann 1. mars hafa 4000 símtöl borist.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.