32 liða úrslitin taka á sig skýrari mynd
World

32 liða úrslitin taka á sig skýrari mynd

March 28, 2026
RÚV
Scroll

Línur héldu áfram að skýrast í dag fyrir 32 liða úrslit Mjólkurbikarkeppni karla í fótbolta þegar átta leikir fóru fram í annarri umferð. Ýmir og Árbær sem leika í 3. deild komust áfram eins og fyrstu deildarliðið Ægir Þorlákshöfn sem mætir Árbæ í 32 liða úrslitunum.Leiknir Reykjavík komst áfram og mætir ríkjandi bikarmeisturum Vestra sem koma beint inn í 32 liða úrslitin.

32 liða úrslitin taka á sig skýrari mynd

Þróttur Reykjavík sem leikur í 1. deild vann 3-1 sigur á 2. deildarliðli Víkings úr Ólafsvík og Þróttarar mæta Bestu deildarliði ÍBV í 32 liða úrslitunum í Vestmannaeyjum.Kormákur/Hvöt mætir BreiðablikiKormákur/Hvöt sem leikur í 2. deild vann 1. deildarlið Völsungs í framlengdum leik, 2-3 á Húsavík, þar sem staðan var jöfn, 2-2, eftir venjulegan leiktíma. Kormákur/Hvöt mætir Breiðabliki í 32 liða úrslitunum um páskahelgina.Fyrstu deildarlið Grindavíkur komst einnig áfram með 0-2 sigri á Elliða sem leikur í 4. deild. Ýmis sem leikur í 3. deild vann risasigur, 10-0, á KFS sem leikur í 5. deild. Ýmir mætir annað hvort ÍR eða Aftureldingu í 32 liða úrslitunum.Úrslit dagsinsÞróttur R. - Víkingur Ólafsvík 3-1KFA - Sindri 1-0Völsungur - Kormákur/Hvöt 2-3Elliði - Grindavík 0-2Léttir - Árbær 3-5Ýmir - KFS 10-0Ægir - Reynir Sandgerði 2-0Leiknir R. - Smári 3-0Viðar Örn með þrennuÞrír leikir fóru fram í annarri umferð bikarkeppninnar í gærkvöld. Selfoss úr annarri deild burstaði Augnablik 7-1. Viðar Örn Kjartansson skoraði þrennu fyrir Selfoss sem flýgur áfram í 32 liða úrslitin og mætir þar Bestu deildarliði Stjörnunnar.Tveir aðrir leikir fóru fram í gærkvöld, 1. deildarlið HK vann 4-0 sigur á Boltafélaginu úr Fossvogi, BF 108 sem leikur í 5. deild. HK mætir Fjölni eða Víði í 32 liða úrslitunum. Þá vann Höttur úr 3. deild öruggan sigur á Neista frá Djúpavogi, 5-0, og mætir KA í 32 liða úrslitunum.Eftirfarandi leikjum er ólokið í annarri umferð.Tindastóll - Magni 29. mars kl. 14:00ÍR - Afturelding 29. mars kl. 20:00Njarðvík - Hvíti Riddarinn 30. mars kl. 19:00Álftanes - Kári 30. mars kl. 19:00Haukar - KFR 30. mars kl. 19:00Fjölnir - Víðir 1. apríl kl. 19:00Sjá nánar: Mjólkurbikar karla á vef KSÍFimm sjónvarpsleikir í 32 liða úrslitunumLiðin úr Bestu deildinni koma beint inn í 32 liða úrslitin og var dregið í þau í vikunni. 32 liða úrslitin hefjast með sjö leikjum á laugardeginum um páskahelgina, 4. apríl. Fimm leikir verða sýndir beint á rásum RÚV og allir leikirnir verða gerðir upp í Bikarkvöldi á RÚV annan í páskum.32 liða úrslitinÍBV - Þróttur Reykjavík - 4. apríl kl. 12:00Kormákur/Hvöt - Breiðablik - 4. apríl kl. 14:00Þór - FH - 4. apríl kl. 14:00 Beint á RÚVGrótta - Álftanes eða Kári - 4. apríl kl. 14:00Höttur - KA - 4. apríl kl. 15:00Vestri - Leiknir Reykjavík - 4. apríl kl. 16:00Fram - Víkingur Reykjavík - 4. apríl kl. 17:00 Beint á RÚV 2Tindastóll eða Magni - Njarðvík eða Hvíti Riddarinn - 5. apríl kl. 15:00Stjarnan - Selfoss - 5. apríl kl. 15:00 Beint á RÚVÍR eða Afturelding - Ýmir - 5. apríl kl. 15:00Árbær - Ægir - 5. apríl kl. 15:00Grindavík - Keflavík - 6. apríl kl. 13:00 Beint á RÚV 2ÍA - Haukar eða KFR - 6. apríl kl. 13:00Fjölnir eða Víðir - HK - 6. apríl kl. 13:00Fylkir - KFA - 6. apríl kl. 14:00KR - Valur - 6. apríl kl. 16:00 Beint á RÚVBikarkvöld kl. 17:55 - Beint á RÚVSjá allar beinar íþróttaútsendingar framundan á rásum RÚV

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More