19 ára efstur í Formúlu 1
March 29, 2026
RÚV
Þriðja mót tímabilsins í Formúlu 1 kappakstrinum fór fram í Japan í morgun. Ítalski ökuþórinn Kimi Antonelli sigraði stóð uppi sem sigurvegari en hann er aðeins 19 ára og á öðru keppnistímabili sínu í Formúlu 1.Antonelli ekur fyrir Mercedes liðið og kom inn í það á síðasta ári í stað Lewis Hamilton sem skipti þá yfir til Ferrari. Antonelli hefur byrjað árið frábærlega því Japanskappaksturinn í dag var annað mótið í röð sem hann vinnur.
Þar að auki varð hann annar í fyrsta móti ársins, þá á eftir Bretanum George Russell sem er einmitt samherji hans í Mercedes keppnisliðinu. Russell varð fjórði í stigakeppni ökumanna á síðasta ári og Antonelli sjöundi, en þeir eru nú í efstu tveimur sætunum eftir fyrstu þrjú mót ársins og framhaldið lofar því góðu hjá þeim og þeirra liði. Antonelli er með níu stiga forystu á stigalista ökuþóra og sá yngsti í sögu Formúlu 1 til að vera í forystu á stigalistanum.Næsta Formúlu 1 keppni verður í Miami í Bandaríkjunum 3. maí, þannig nú tekur við rúmlega mánaðarhlé.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.