130.000 mannshvörf í Mexíkó síðustu 20 ár
0
World

130.000 mannshvörf í Mexíkó síðustu 20 ár

April 19, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Um 130.000 manns hafa horfið í Mexíkó síðustu tvo áratugi. Fólkið er talið hafa verið myrt og leit er drifin áfram af ástvinum. Sameinuðu þjóðirnar segja stjórnvöld ekki ráða við vandann og þurfa utanaðkomandi hjálp.Þrátt fyrir að ekki sé stríð í hefðbundnum skilningi í Mexíkó hverfa þar þúsundir manna ár hvert. Mannshvörfin eru flest rakin til skipulagðra glæpasamtaka.Sonur minn er horfinn.

130.000 mannshvörf í Mexíkó síðustu 20 ár

Nú eru átta ár síðan hann hvarf. Þess vegna stend ég í þessari baráttu og leita hans og allra sem er saknað,“ segir Raúl Servín frá Tlajomulco de Zuniga. Hann fer hvern þriðjudag með félögum sínum og eltir nafnlausar ábendingar sem þeim berast. Hópurinn er vopnaður skóflum og prikum.Þúsundir manna hverfa ár hvert í Mexíkó. Maður sem hefur ekki séð son sinn árum saman leitar líkamsleifa ásamt öðrum ástvinum. Hann segir mikilvægt að hver og einn fái virðulegan hvílustað eftir dauða sinn. Mannshvörfin eru rakin til glæpagengja.Þetta er sorglegt og sárt en við finnum líka huggun í þeirri vitneskju að manneskja sem var grafin svo lengi á leynilegum stað fer nú aftur til fjölskyldu sinnar og fær virðulegan hvíldarstað þar sem hún á heima,“ segir Servín.Oft leita þau nálægt stöðum þar sem glæpagengi halda til og það getur verið hættulegt. Síðan 2010 hafa 36, hið minnsta, verið drepnir við leit.130.000 mannshvörf hafa verið skráð hjá hinu opinbera síðan 2006. Nefnd innan Sameinuðu þjóðanna segir stjórnvöld ekki ráða við vandann og þurfa utanaðkomandi aðstoð. Dæmi séu um að stjórnvöld ýmist tengist mannshvörfum eða hafi ekki gert nóg til að koma í veg fyrir þau og rannsaka.Forseti landsins, Claudia Sheinbaum, er þó á öðru máli. Sameinuðu þjóðirnar geta ekki sakað ríkisstjórn sem barðist gegn mannshvörfum á vegum ríkisins um að fremja sama glæp,“ sagði hún í ávarpi á dögunum.Ég held að forsetinn finni ekkert til með okkur, hafi enga samkennd vegna týnda fólksins okkar, og leyfi Sameinuðu þjóðunum aldrei að hjálpa til,“ segir Servín. Hann vonar að Sameinuðu þjóðirnar þurfi ekki að grípa inn í með valdi og að forsetinn samþykki þess í stað aðkomu alþjóðastofnunarinnar að eigin frumkvæði svo ofbeldið og mannshvörfin taki enda.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More