0
120 íslenskir listamenn krefjast sniðgöngu Eurovision
April 21, 2026
Posted 1 hour ago by
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin í sjötugasta skipti í maí og má búast við því að milljónir manna um allan heim muni fylgjast með. Herferðin No Music for Genocide hefur því birt opið bréf þar sem kallað er eftir sniðgöngu keppninnar vegna þeirrar ákvörðunar að leyfa Ísrael að taka þátt þriðja árið í röð þrátt fyrir hernað þeirra á Gaza.Bréfið var upphaflega undirritað af fjölmörgum þekktum listamönnum og á þeim lista mátti finna Ólaf Arnalds, Sigur Rós, Of Monsters and Men sem og Kneecap, Brian Eno, Massive Attack, Macklemore og fyrrum Eurovision-sigurvegarana Emmelie de Forest og Charlie McGettigan.Síðan bréfið var birt hafa hátt í þúsundir listamanna bætt nafni sínu við listann, þar af um 120 Íslendingar.
Þar má nefna Benna Hemm Hemm, BlazRoca, Braga Valdimar Skúlason, Bríeti, Daða Frey, Eirík Hauksson, FM Belfast, Gus Gus, Hatara, Hildi Guðnadóttur, Lay Low, MAMMÚT, Megas, Pál Óskar, Retro Stefson og fleiri.Í bréfinu er gagnrýnt að Ísraelar fái að taka þátt þriðja árið í röð þrátt fyrir hernaðaraðgerðir á Gaza á meðan Rússlandi er áfram meinuð þátttaka vegna ólögmætrar innrásar sinnar í Úkraínu.Undirritaðir telja að keppnin sé notuð til að hreinsa ímynd Ísraels og skora á ríkisstöðvar, flytjendur laga, starfsfólk og áhorfendur að sniðganga keppnina þar til ísraelska ríkisútvarpinu KAN hefur verið vísað úr keppni.Við neitum að þegja þegar ofbeldi Ísraels þaggar niður í lífi Palestínumanna. Þegar börn í ísraelskum fangelsum þola barsmíðar fyrir að raula lag. Þegar það eina sem stendur eftir af nær hverju sviði, hljóðveri, bókabúð og háskóla í Gaza eru rústir einar, þar sem lík hinna myrtu bíða enn þess að finnast og fá viðeigandi greftrun.Sem listamenn gerum við okkur grein fyrir sameiginlegum mætti okkar og kraftinum sem felst í því að neita. Við neitum að þegja. Við neitum að vera samsek. Við hvetjum aðra í okkar grein til að standa með okkur.“Keppnin í ár verður haldin í Vín í Austurríki dagana 12.-16. maí eftir að austurríski tónlistarmaðurinn JJ sigraði með laginu Wasted Love í fyrra. Eftir sigurinn hefur JJ kallað eftir því að Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni.Fimm þjóðir hafa dregið sig úr keppni í mótmælaskyni vegna þátttöku Ísraels og er Ísland þar á meðal ásamt Írlandi, Spáni, Hollandi og Slóveníu. Í bréfinu er því haldið fram að enn eitt árið sé keppnin notuð til að hvítþvo glæpi Ísraels og gera grimmilegt hernám þess, umsátur og þjóðarmorð á Gaza ásættanleg í augum almennings.Til stóð að halda aukaþing aðildarþjóða til að greiða atkvæði um þátttöku Ísraels í Eurovision í lok síðasta árs en það var blásið af þegar samið var um vopnahlé á Gaza. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, innleiddi þá nýjar reglur um hvernig koma má lögum á framfæri og hvernig atkvæðagreiðslu verður háttað. Meðal annars verður aftur dómnefnd í forkeppnunum. Reglurnar eru viðbragð við gagnrýni á framgöngu Ísraels í síðustu keppni. Talið er að Ísraelar hafi beitt áhrifum sínum til að tryggja sér atkvæði í símakosningu eftir að hafa hlotið yfirgnæfandi sigur í símakosningu í keppninni 2025.Í fyrra tóku listamenn á borð við Björk, Hayley Williams og Lorde þátt í aðgerðum á vegum No Music for Genocide með því að loka á aðgengi að tónlist sinni í Ísrael og hljómsveitin Kneecap hefur haft orð á því að bann Rússlands 2022 sýndi að útilokun Eurovision væri möguleg þegar pólitískur vilji væri fyrir hendi. Með því að leyfa áframhaldandi þátttöku Ísraels væri afstaða tekin.Eftir að í ljós kom að Noam Bettan færi fyrir hönd Ísraels í lok janúar skaust landið upp á topp veðbanka sem sigurstranglegasta lagið en í dag situr Ísrael í sjötta sæti veðbankanna og Finnland trónir á toppnum.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.