Rústir í Odesu eftir árás 19. mars 2026. Myndin tengist fréttinni ekki beint.AP / Oleg GrekovAð minnsta kosti 10 eru særðir, þar af eitt barn, eftir árásir Rússa á hafnarborgina Odesu í Úkraínu í nótt, samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent. Drónaárás var gerð á fæðingarspítala og þrjár menntastofnanir sem olli töluverðum skemmdum.Engin slys á fólki urðu á fæðingarspítalanum en starfsfólk og sjúklingar náðu að koma sér í öruggt skjól meðan á árásinni stóð. Ódesa hefur reglulega orðið fyrir árásum Rússa síðan innrásin í Úkraínu.
March 28, 2026
Source Information
RÚV
Iceland
Lean left